Bakgrunnur








Velkomin(n) á
JonDan.is.

Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.

Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.

Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.

Höfundurinn hefur nú loksins náð tilskildum aldri til að geta lokað ferilskránni með titlinum „Opinber starfsmaður án vinnuskyldu".

Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði
sep.

29


2009

Stjórnmál
Hvað um þá sem geta borgað?


Af fréttum að dæma virðist sem ekki muni þurfa að sækja sérstaklega um þá lækkun greiðslubyrði sem Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra boðar. Ég á reyndar bágt með að trúa þessu, en verði þetta raunin, er ærin ástæða til að vara það fólk við, sem hreint ekki er í neinum vandræðum.




sep.

28


2009

Stjórnmál
Árni Páll sýnir á spilin


Hugmyndir félagsmálaráðherra eru nú að skýrast dálítið. Afborganir af lánum eiga að miðast við einhverja dagsetningu í maí 2008. Höfuðstólnum verður þó ekki haggað í bili. Það fylgir sögunni að lánstími eigi allavega ekki að lengjast mikið og eftirstöðvar verði á endanum afskrifaðar.




sep.

28


2009

Almennt
Fjölskyldudagur


Í dag hef ég alveg sleppt því að velta fyrir mér vandamálum samfélagsins. Í dag átti konan mín nefnilega afmæli. Og að auki fékk sonur okkar bikar. Við feðgarnir sáum svo um kvöldmatinn fyrir afmælisbarnið.



sep.

27


2009

Stjórnmál
Árni Páll sýnir ekki á spilin


Margir bloggarar hafa í kvöld fjallað um ?útspil? Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Í ræðu sinni lofaði hann að greiðslubyrði lána yrði lækkuð og jafnframt tryggt að greiðslutími lengist ekki úr hófi á móti.




Skráðar færslur: 12 - Síða: 1 af 3








X
Hafðu samband

Mitt nafn


Mitt netfang


Fyrirspurn




Talan í myndinni hér að ofan er





X
Senda


Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda


Mitt nafn


Mitt netfang


Athugasemd / efni:





X
Fréttabréf

Nafn


Netfang




Fréttabréf í boði

Engin fréttabréf í boði.






Talan í myndinni hér að ofan er