Bakgrunnur








Velkomin(n) á
JonDan.is.

Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.

Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.

Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.

Höfundurinn hefur nú loksins náð tilskildum aldri til að geta lokað ferilskránni með titlinum „Opinber starfsmaður án vinnuskyldu".

Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði
maí

31


2010

Stjórnmál
Grínið sem varð alvara


Nú er ljóst að Besti flokkurinn sem upphaflega var yfirlýst grínframboð, var í rauninni rammasta alvara allan tímann. Þetta var smám saman að koma í ljós dagana fyrir kosningar, en jafnframt mátti greina að frambjóðendurnir virðast hafa hjartað á réttum stað. Um það vitnar t.d. sá ágæti brandari að bjóða Reykvíkingum að ættleiða útigangsmenn, sem Einar Örn Benediktsson útskýrði vel í dag.



maí

29


2010

Stjórnmál
Stóri skellurinn


NÚNA, rétt áður en fyrstu tölur birtast, bendir flest til að stjórnmálaflokkarnir fái allir talsverðan skell. Ástæðan er einföld. Stór hluti kjósenda treystir hvorki lengur stjórnmálaflokkum né stjórnmálamönnum. Og það sem kannski er enn verra: Stjórnmálamennirnir okkar hafa fyrirgert þessu trausti alveg sjálfir.



maí

18


2010

Stjórnmál
Duga 31% fyrir meirihluta?


Það kann sjaldnast góðri lukku að stýra að verða uppnæmur fyrir smámunum. En skoðanakönnun MMR sem birt var í dag, hefur greinilega komið illa við marga. Þessar áhyggjur eru að mínu viti nokkurn veginn ástæðulausar.



maí

15


2010

Almennt, Stjórnmál
Spilltur ráðherra?


Þegar það er skyndilega runnið upp fyrir okkur, að Ísland var ekki bara stórasta land í heimi, heldur kannski líka það spilltasta á fyrstu árum 21. aldarinnar, þá er hálfkyndugt að reka augun í spillta stjórnmálamenn í nágrannalöndunum. Í þessu tilviki danska umhverfisráðherrann, Karen Ellemann.




Skráðar færslur: 7 - Síða: 1 af 2








X
Hafðu samband

Mitt nafn


Mitt netfang


Fyrirspurn




Talan í myndinni hér að ofan er





X
Senda


Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda


Mitt nafn


Mitt netfang


Athugasemd / efni:





X
Fréttabréf

Nafn


Netfang




Fréttabréf í boði

Engin fréttabréf í boði.






Talan í myndinni hér að ofan er