Bakgrunnur








Velkomin(n) á
JonDan.is.

Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.

Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.

Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.

Höfundurinn hefur nú loksins náð tilskildum aldri til að geta lokað ferilskránni með titlinum „Opinber starfsmaður án vinnuskyldu".

Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði
des.

25


2011
Almennt
Jól
Jólin eru tími hamingju og friðar. Eða tími óhófsdrykkju og ófriðar. Allt eftir því hvernig maður lítur á málið. Konan mín gerði þessi jól allt öðru vísi. Hún ákvað að halda stríðnisjól.
Unglingnum á heimilinu gaf hún pínulitla vekjaraklukku. Við prófun reyndist þessi klukka tæplega þess umkomin að vekja frosk.

En sonurinn skildi hintið.

Mér gaf hún vasaljós.  Þetta vasaljós er að mínum skilningi einskisnýtt. Það virkar nefnilega því aðeins að maður pumpi í það rafmagni með handafli.  Og mér er spurn: Í hvers konar heimi erum við eiginlega ef maður þarf að beita vöðvaafli til að framleiða pínulítið rafmagn? 

Síðustu 15 árin hef ég unnið fyrir mér sitjandi á rassgatinu.

Það er að sjálfsögðu langt fyrir neðan mína virðingu á sjá nokkurt hint í þessu.












X
Hafðu samband

Mitt nafn


Mitt netfang


Fyrirspurn




Talan í myndinni hér að ofan er





X
Senda


Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda


Mitt nafn


Mitt netfang


Athugasemd / efni:





X
Fréttabréf

Nafn


Netfang




Fréttabréf í boði

Engin fréttabréf í boði.






Talan í myndinni hér að ofan er






X



Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Nafn


Netfang


Blogg / Vefsíða


Athugasemd



Talan í myndinni hér að ofan er




Skrá athugasemd