Þessi lán voru tekin til að auka hlut Sparisjóðs Húnaþings og Stranda eftir sameininguna við Sparisjóð Keflavíkur og Sparisjóð Vestfjarða, en öfugt við flesta aðra sem tóku kúlulán til kaupa í fjármálafyrirtækjum, þurftu bændur og búalið norður í landi (og trúlega líka á Vestfjörðum) að gangast í persónulega ábyrgð. Síðast þegar ég frétti, stefndi einfaldlega í uppboð fyrir norðan, en ekki neinar afskriftir.
Samanlögð upphæð þessara skulda er mér vitanlega ekki alveg á hreinu, en mun slaga hátt í 3 milljarða Upphæðir eru auðvitað misjafnar og því óvíst hversu margir stefna í gjaldþrot, en af hátt í 140 skuldurum er varlegt að áætla að hér gætu um 100 heimili átt í hlut.
Það er dálítið ógnvænlegt að sjá einn mann ganga út úr þessum rústum með peninga sem dygðu fyrir 10% af öllum stofnbréfaskuldum einstaklinga í mínum fornu heimahögum.
Ekki alveg svona einfalt
Ég átti hálfpartinn erfitt með að trúa þessu og skoðaði málið þess vegna örlítið nánar. Og eins og svo oft er málið víst ekki alveg svona einfalt.
Að því er ég get best lesið úr
frétt Viðskiptablaðsins 29. apríl sl. og
leiðréttingu Geimundar sjálfs daginn eftir, virðast mánaðarlaun hans hafa verið rúmar 2 milljónir eða alls rífar 26 milljónir á ári. Að auki segist hann í samtali við
Víkurfréttir hafa tekið út allan séreignarsparnað sinn á árinu 2009. Séreignarsparnaðurinn hefur þá numið nærri 214 milljónum króna.
En samt svona einfalt
Rétt eins og aðrar lífeyrissjóðsgreiðslur er séreignasparnaður ekkert annað en laun ? að vísu laun sem lögð hafa verið til hliðar, en laun engu að síður. Og á árinu 2009 tók sparissjóðsstjórinn út laun sem í heildina samsvara kringum tíunda hluta þeirra skulda, sem nú virðast munu steypa kannski 100 fjölskyldum norður í landi í gjaldþrot.
Jafnvel þótt málið sé skoðað örlítið nánar stendur fyrirsögnin sem sagt nokkurn veginn óhögguð.
Tvö sjónarhorn til viðbótar
Allt annað mál er svo það, að á sinn hátt má finna til með þessum manni, sem undir lok 45 ára starfsævi hjá sama fyrirtækinu bjálfaðist til að spila Matador með alvörupeninga ? meira að segja peninga annarra. Sjálfsagt hefði hann fremur viljað enda ferilinn á annan veg.
Og enn annað mál er svo það, að þrátt fyrir að maðurinn hafi sett þrjá stönduga sparisjóði á hausinn og steypt fjölda fólks í fjárhagslega glötun, má auðveldlega reikna út, að samanlögð eftirlaun hans séu tæpast lægri en hálf milljón á mánuði að öllum sköttum greiddum. Samt getur hann haldið óskertum þeim ríflega 140 milljónum sem hann á eftir af laununum sem hann tók út í fyrra - eftir að hafa greitt 100 milljónir í skatt.